Auglýsing

Innskráningar kubbur

Klukkan

Könnun

Hvernig er nýja HÍM síðan?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Við eldumst....

17. júlí 2007 klukkan 22:28
TIL HAMINGJU MEÐ 25 ÁRIN AUÐUR MÍN :)

Ragga
Hinn íslenski matarklúbbur
Engin athugasemd

Auður Agla: Og það er komið sumar

17. apríl 2007 klukkan 09:00
Hér er komið sumar, að minnsta kosti að mínu mati! Hér er sól dag eftir dag, viku eftir viku, hitinn fer daglega yfir 20 stig, oftast yfir 25 stig! Okkur var alveg nóg boðið þegar gráðurnar voru orðnar 28. Ég veit eiginlega ekki hvernig þetta verður í sumar.

Annar virðist sumarið ætla að verða stórkostlegt. Eftir tvær vikur koma mamma og pabbi og Iðunn, svo í lok maí verður hálfur matarklúbburinn staddur hér í kotinu mínu og fer á Rajaton tónleika (miðar á 2.bekk eru komnir í hús), svo skreppum við til Íslands í sveitaferð, svo förum við í geggjað adriahafsferðalag á bílnum okkar, svo enn fleiri heimsóknir og svo heimferð í byrjun ágústs...

Ég veit ekki hvernig verður að hætta í þessu dekurlífi -ég veit samt að það verður hrikalega erfitt!
Hinn íslenski matarklúbbur
Engin athugasemd

Auður Agla: þroski?

28. mars 2007 klukkan 20:34

Ég held ég sé eitthvað að breytast, mér er sagt það kallist þroski en ég veit ekki hvort þetta er allt af hinu góða... Alla vega held ég að eftirtaldar staðreyndir geti fengið marga til að reka upp stór augu!

-Ég drekk rauðvín og finnst það gott -eiginlega betra en hvítvín
-Ég elska dökkt súkkulaði, já dökkt. Uppáhalds súkkulaðið mitt er dökkt með kirsuberjagumsi og chili
-Ég drekk bjór, reyndar helst bara dökkan weissbier enn sem komið er...
-Ég er búin að sjá haug af bíómyndum t.d. Rain Man, A Beautiful Mind, Gaukshreiðrið, The Pianist, James Bond og margar margar margar fleiri. Ég er samt enn svolítið rugluð í hvaða leikarar eru frægir og hvað þeir heita þá o.s.frv. -Sumt breytist ekki svo glatt

Hinn íslenski matarklúbbur
5 athugasemdir

Auður Agla: Eivör

24. mars 2007 klukkan 11:11
Í morgun var ég að senda nokkra tölvupósta og fór þá að skoða gömul bréf og hreinsa aðeins til. Ég rakst á hitt og þetta skemmtilegt og eitt af því var bréf frá Halldóru síðan í byrjun nóvember 2005. Það skemmtilega við þetta bréf var viðhengi -jólanótt, jólalagið frá Eivör fyrir þessi jól. Í bréfinu stóð að þetta væri fallegasta lag í heimi. Ég man að ég las það fyrst og hugsaði með sjálfri mér að það væru nú kannski svolítið stór orð en svo hlustaði ég á það og þá vissi ég að ég hefði alveg getað sagt það sjálf líka.

Nú sit ég hér við tölvuna mína og hlusta á lagið aftur og aftur, jólalag í lok mars, en að gerir ekkert til, lagið er alveg þess virði að hlusta á það oftar en bara einn mánuð á ári. Lagið fær mig líka til að hugsa um það sem Eivör býr yfir. Eitthvað sérstakt í henni fær hana til að hafa hæfileika til að semja hvern gullmolann á fætur öðrum. Jólanátt er ekki það eina frá henni sem getur bara fengið mann til að gráta upp úr þurru, bara yfir fegurðinni eða lífinu eða ég veit ekki hverju. Krákan hefur fengið að ganga þó nokkra hringi í geislaspilaranum í bílnum okkar eftir að okkur áskotnaðist hann um daginn.

Það er svo mikils virði að eiga svona fólk sem búa yfir einhverju svona einstöku og kunna að fara með það og miðla því á sinn einstaka hátt!
Hinn íslenski matarklúbbur
2 athugasemdir

Ísland best í heimi!

19. mars 2007 klukkan 23:13
Sjálfstæðisstefnan er grundvöllur afstöðu flokksins í öllum málum. Kjarni hennar er trúin á frelsi einstaklingsins og jöfn tækifæri allra til að þroska og njóta hæfileika sinna. Sjálfstæði og öryggi þjóðarinnar eru einnig mikilvægur þáttur í stefnunni. Svigrúm og athafnafrelsi fólks og fyrirtækja verður best tryggt með lágmarksafskiptum hins opinbera og stuðningur við þá sem á þurfa að halda með sterku öryggisneti.
Hinn íslenski matarklúbbur
3 athugasemdir

Elsku Ísland!

19. mars 2007 klukkan 19:21
Ég vil sjá nýja atvinnustefnu í landinu. Ísland á að hafa metnað til að vera í fremstu röð þekkingarþjóðfélaga en ekki stefna að því að verða mesta álbræðsluþjóð heimsins. Mikilvægasta orkan er hugarorkan og hana eigum við að nýta í ríkara mæli - því hún er ótæmandi.


Tekið af framtidarlandid.is -vona að ALLIR skrifi undir þar...
Hinn íslenski matarklúbbur
1 athugasemd

Regína ammli

13. mars 2007 klukkan 12:36
Regina Phalange er afmælisbarn dagsins Koss 25 ára gellan í dag! Til hamingju með daginn Brosandi

Hér eru smá myndir af stelpunni:




Hinn íslenski matarklúbbur
2 athugasemdir

Nokkrar gamlar og góðar

05. mars 2007 klukkan 16:04



Brullupið



Í Finnlandi - voða litlar og saklausar stelpur!



...í messu



Æfingabúðir
Hinn íslenski matarklúbbur
5 athugasemdir

Global warming - global warning

28. febrúar 2007 klukkan 09:14

Þessa viku er ég ekki að kenna á skíði. Ástæðan er sú að hér er ekki nægur snjór. Helsta umræðuefnið í Tirol þennan veturinn er snjóleysið. Það snjóar sáralítið og hitastigið fer auðveldlega upp í 10-14 gráður yfir daginn og yfirleitt er heiðskýrt og glampandi sól. Hlíðar fjallanna sem snúa mót suðri eru byrjaðar að grænka og þar er ekki snjókorn að finna. Það þarf náttúrulega ekki að taka það fram að þetta hefur umfangsmikil efnahagsáhrif hér í Tirol fyrir skíðasvæðarekendur, skíðaskóla, sportvöruverslanir, gistihús, veitingastaði o.s.frv.

 

Ef maður þarf að tala við fólk og skortir umræðuefni, þá er óþarfi að örvænta því maður talar bara um veðurfarið. Ekki ósvipað og með Íslendinga. Það sem fljótlega vakti samt athygli mína var það hversu sterkum böndum þetta veðurfar í vetur er tengt við áhyggjur manna af hnattrænni hlýnun og gróðurhúsaáhrifum. Hérna er vandinn kannski ívið áþreifanlegri en á Íslandi, jöklunum hér fer fækkandi –þeir hreinlega eru að hverfa og hitastigið fer óhugnalega hátt. Til eru þó þeir sem segja að þessi vetur sé bara undantekning og svona sé þetta einfaldlega á nokkura ára fresti...

 

Flestir þeir sem hafa eitthvað verið að skoða loftslagsbreytingar hrista hausinn, bæði yfir því sem er að gerast og líka yfir því sem er ekki að gerast. Mig hryllir við því sem er að gerast en samt held ég áfram að keyra bílinn minn, henda plasti, kynda kofann, sóa heitu vatni o.s.frv. Að vera á alpaskíðunum mínum er reyndar sem betur fer ekki sérstaklega mengandi...

Hinn íslenski matarklúbbur
3 athugasemdir

Myndir frá Auði skíðagellu í Innsbruck

21. febrúar 2007 klukkan 11:58
Settar inn af Halldóru.



Tindur með krossi!



Turtildúfurnar í doldið geggjuðu umhverfi!



Innsbruck


Skíðakennarinnn
Hinn íslenski matarklúbbur
5 athugasemdir